Wednesday, April 2, 2008

Tileinkað litla bróður

Í dag fékk ég knús þegar ég vaknaði. Mamma þú ert besta mamma í heimi. Í dag, var mér sagt að ég væri fallegasta mamma í heimi. Í dag fékk ég mörg knús bara af því ég er ég . Í dag gat ég gefið fullt af knúsum alveg eins og ég vildi. Sagt tveimur ótrúlega fallegum einstaklingum að ég elski þá mörgum sinnum. Í dag tóku sætir stubbar af borðinu sjálfir :), í dag háttuðu tveir stubbar sig sjálfir :) í dag var mörgum sinnum sagt takk mamma :) í dag hlýnaði mér mörgum sinnum við hlátur, bros og stubbalag. Í dag gat ég mörgum sinnum sagt takk ástin mín.

Þetta var ekki fyndið, þetta átti ekki að vera fyndið, þetta finnst mörgum án efa hræðilega væmið, en þetta er satt og mig langaði að segja það :Þ og þetta er tileinkað litla bróður :D

2 comments:

Dýrið said...

já... takk fyrir það :)

Unknown said...

Uhmmm. Var litli bróðir svona svakalega duglegur þegar hann var lítill?
Man bara ekki til þess :)