vá ég veit það er langt síðan ég tjáði mig síðast. Sem sagt eins og ég áður tjáði þá hrundi tölvan mín og núna loksins fór ég í að redda málunum og komast aftur í tengingu við umheiminn :). Rosalega hef ég saknað mín.
Las ferlega góða grein um daginn þar sem samkvæmt rannsókn þá komust þeir sem eru almennilegir og heiðarlegir lengst áfram í baráttunni miklu.
Mikið var að belja bar. Þetta er nefnilega málið. Það er alltaf verið að prenta það inn að eina leiðin til að komast áfram sé að vera egoisti en þarna er orðið ljóst að við þessi góðu eigum okkur líka viðreisnar von. Þvílíkur léttir ég mun meika það :Þ.
Krónan og drallið féll eins og við var að búast. Þýðir ekkert að grenja það, verst að vera akkurat núna með helmingin af bílaláninu í erlendri minnt :Þ en nenni ekki að velta mér upp úr því þetta er nú ekki svo rosalegt ennþá.
Og svo eru það páskarnir. Skrítið eiginlega að ég hin kristna kona skuli kippast við þegar stubburinn minn kemur heim úr skólanum og fullyrðir (eins og hann lærði þar) að Jesús hafi.... eitthvað. Ég hélt virkilega að það væri kennt í skólum að okkar trú segði að , þarna er regin munur á og þar sem ég vil að drengirnir mínir læri að bera virðingu fyrir trúarbrögðum annarra og einnig fjölbreytileika mannfólksins ræddi ég það við hann að okkar trúarbrögð segðu þetta en það væru líka til fleiri svona sögur.
Ég vil að kristnifræði sé kennd en mér finnst þurfa að skerpa á skilningnum varðandi það að hér sé um kristin trúarbrögð að ræða ekki hluti sem hægt sé að fullyrða um sem heilagan sannleika.
Fannst svolítið skrítið að átta mig á því að hlutirnir eru enn eins og þegar Anna Magnúsdóttir heitin kenndi okkur og líka það að mér skildi bregða svona við. Hér förum við yfirleitt með bænir. En jú reyndar þá finnst mér það vera í anda kristinnar trúar að kenna opin huga og virðingu fyrir öðrum trúarbrögðum.
Og megi guð nú blessa okkur öll. Því hann er jú bara samkvæmt minni trú einn og heitir mörgum nöfnum eftir því hvað hver leggur í þá orku sem í honum býr. :)
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Já það er þetta með kennslu trúarbragða í skóla. Viðkvæmt mál á ferð. Best færi að mínu mati á að kennd væri námsefni sem héti trúarbrögð. Þar mættu síðan mæta fulltrúar trúarhópa og kynna sín brögð. Kennarinn sæi svo um tíma inn á milli til að setja allt í samhengi og bæta það sem upp á vantar.
Kennsla opinnar og gagnrýninnar hugsunar er ómetanleg - en er hræddur um að fólk hafi almennt mikinn hug á að deila um þessi mál.
Post a Comment